|
12.03.2009 16:26:57 / hver
Sæl öll sömul, />
> >
Smá upplýsingar um eldhúsið sem er að
fara á fullt skrið!!! Á morgun verður boðið upp á Rauðlinsusúpu með grænmeti.
Eins og síðasta föstudag verður súpan elduð af Pauline. Súpan verður væntanlega
tilbúin kl ca 12 á hádegi og verður hún í boði eins lengi og eitthvað verður
til af henni. />
> >
Í næstu viku verður matur þriðjudag,
fimmtudag og föstudag og þá byrjum við aftur að rukka 250 kr fyrir máltíðina.
Einnig mikilvægt að skrá sig þá í mat ef maður ætlar að vera viss um að fá
einhvern mat. Þeir sem skrá sig ganga fyrir. />
> >
Þriðjudag: Hakkpottréttur (Bogga eldar) />
Fimmtudag: Steiktur fiskur (Bogga eldar) />
Föstudagur: Ítölsksúpa (Pauline eldar) />
> >
> >
Minni ykkur á húsfund á mánudag, mjög
gott að sem flestir mæti Vinsamleg tilmæli eða húsreglur verða tekin fyrir á
fundinum þannig endilega kíkið hingað og skoðið hvað ykkur finnst um þær reglur
sem búið er að semja þannig þið getið sagt ykkar skoðun á þessu. (Þetta mun
fara upp á vegg) />
> >
Minni einnig á vatnsleikfimina, hún
byrjar kl 8:40 á mánudag og er til 16:10 />
> >
Það var líka fjör í HVER í dag, spilað,
lesið og skrafað nú og svo má ekki gleyma kaffisopanum góða sem rann ljúft
niður. />
»
16.02.2009 20:24:59 / hver
Ætlaði að setja inn myndir en það gekk því miður ekki þrátt fyrir þrjár tilraunir þannig að ég gafst upp í bili elskurnar. Kveðja kolla.
»
16.02.2009 09:41:59 / hver
Halló Það verður enginn húsfundur í dag, en á morgun, 17. feb kl. 15 verður sjálfsstyrkingarhópurinn kynntur af þeim Siggu iðjuþjálfa og Klöru sálfræðingi. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að forvitnast um hvað fer fram í þessum hóp að koma. Það er engin skuldbinding, bara að koma og forvitnast í byrjun. Thelma (nýr forstöðumaður) mun vera hérna á miðvikudga og fimmtudag í þessari viku og síðan mun hún taka alveg við nk. mánudag (23.feb). Hún mun væntanlega boða ykkur á fund fljótlega.
»
06.02.2009 12:35:57 / hver
Halló !! Það er búið að ráða nýjan forstöðumann í Hver, en það er hún Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir iðjuþjálfi. Núverandi forstöðumaður er að fara að starfa hjá Starfsendurhæfingarsjóði og mun væntanlega hefja störf þar í lok febrúar. Thelma mun vera á fundi með okkur mánudaginn 9.feb. kl. 13, og Sigga iðjuþjálfi verður einnig með okkur. Þar munum við væntanlega fara yfir þær breytingar sem framundan eru. Þann 17. febrúar munu Sigga iðjuþjálfi og Klara sálfræðingur vera með kynningu á sjálfsstyrkingarnámskeiðinu sem þær verða með.
»
29.01.2009 14:29:19 / hver
HÆ Jæja þá erum við búin að ná þeim áfanga að opna Búkollu-nytjamarkað. Hann opanaði kl. 12 í dag og verður opinn til 18. Það verður opið á fimmtudögum og föstudögum 12-18 og laugardögum 10-14. Þetta er verkefni sem notendur HVER geta tekið þátt í ef þeir hafa áhuga á því. Annars ætlum við að halda fund í næstu viku; nú þegar það hefur róast í kringum Búkollu, og fara að koma dagskrá HVER í fastar skorður. Fundurinn verður þriðjudaginn kl. 13. kv. SIggi
»
26.01.2009 12:34:16 / hver
Hæ Það er búið að taka ákvörðun um það að Búkolla opnar nk. fimmtudag kl. 12. Við erum búin að vera að vinna í að gera klárt og loksins er allt að verða klárt þannig að verslunin fer að opna. Við í Hver komum til með að sjá um allt sem tengist versluninni. Við reiknum með að eldhúsið fari aftur af stað í byrjun febrúar hérna í Hver og á svipuðum tíma förum við að auglýsa nánar dagskrá og verkefni Hver. Það eru breytingar framundan þar sem það mun koma nýr forstöðumaður til starfa sem kemur til með að móta framtíð staðarins ásamnt notendum Hver.
kv. Siggi
»
20.01.2009 08:22:38 / hver
Hæ Það verður lokað í Hver í dag vegna veikinda. kv. Siggi
»
15.01.2009 14:44:56 / hver
Hæ Á morgun 16. janúar kl. 14 ætlum við að hittast í Búkollu og skiptast á skoðunum varðandi lokafrágang fyrir opnun á þessum nytjamarkaði. Mikilvægt að sem flestir mæti til að segja sína skoðun og vera með. Skiptir ekki máli hvort þið hafið ekkert komið eða verið mjög virk í undirbúningnum. Vona að ég sjái sem flesta á morgun.
kv. Siggi
»
09.01.2009 08:45:15 / hver
Í gær kom gámur með fullt af dóti sem við losuðum í Búkollu - nytjamarkaði. Nú er staðan orðin þannig að okkur vantar hillur fyrir smádótið og svo þarf að raða upp og skipuleggja verslunina, finna verð og margt fleira. Það væri frábært að sjá sem flesta taka þátt, en við verðum að vinna í þessu í dag. Ætlum samt að reyna að spila eftir hádegi !!
Sjáumst ! kv. Siggi
»
08.01.2009 13:01:28 / hver
Á morgun eftir hádegi verðum við með spiladag og ætlum að reyna að festa hann í sessi á föstudögum. Reynum að mæta sem flest og skapa góða stemningu.
kv. Siggi
»
07.01.2009 08:27:44 / hver
Halló Í gær var húsfundur þar sem málin voru rædd. Sigga iðjuþjálfi var með okkur og hún talaði um valdeflingu, samskonar vinnu og Hugarafl er að vinna með. Einnig var rætt um hvað við vildum gera á næstunni og m.a. var talað um saumaklúbb, spiladag, slökun og hugleiðslu, eldhúsið, karaókíkvöld og margt fleira. Ákveðið var að vera með kynningu á slökun og hugleiðslu kl. 11 nk. fimmtudag. Edda Olsen mun kynna. Á föstudaginn ætlum við síðan að stefna að því að spila eftir hádegi. Hugmyndin var að safna sem flestum spilum hingað á staðinn þannig að það sé hægt að hafa þetta sem fjölbreyttast. Við höfum verið að undirbúa Búkollu og fáum væntanlega annan gám núna í dag til að losa og raða upp.
kv. Siggi
»
05.01.2009 14:23:42 / hver
Hæ öll og gleðilegt ár ! Þá er komið nýtt ár og skemmtilegir tímar framundan. Við áttum frábært kvöld þann 18. desember sl. en þá vorum við með jólamat. Það mættu 15 manns og þvílíkt fjör og ævintýri. Í dag höfum við verið að taka því rólega og venjast nýja árinu, nokkrir eru í Búkollu að taka upp úr kössum og raða í verslunina. Á morgun ætlum við að hittast kl. 13 og SIgga iðjuþjálfi verður með okkur, en hún verður hér eftir á húsfundunum okkar. Klara sálfræðingur verður einnig á morgun frá kl. 14-16. Dagskráin eftir áramót verður í okkar höndum og um að gera að koma á fundinn og segja sína skoðun.
kv. Siggi
»
19.12.2008 13:50:14 / hver
Hæ öll Í gær vorum við með jólamat og það var fín stemning. Það voru 15 manns sem mættu og það voru dýrindis kræsingar á boðstólnum. Frá og með deginum í dag verður lokað og við munum opna aftur mánudaginn 5. janúar kl. 10. Gleðileg jól !!
»
16.12.2008 11:47:47 / hver
Hæ öll Á fimmtudaginn næsta, 18. desember ætlum við að vera með jólamat kl. 18. Hugmyndin var að slútta fyrir jól og áramót með þessu og byrja svo fersk á nýju ári aftur. Við ætluðum að láta fólk koma með lítinn pakka fyrir hámark 500.- Endilega látið vita hvort þið viljið vera með þannig að við getum verslað inn.
Annars erum við núna byrjuð að raða upp í Búkollu, en við tæmdum fyrsta gáminn í gær. Að öllum líkindum opnar hún ekki fyrr en í janúar. Kv. Siggi
»
15.12.2008 09:47:16 / hver
Í dag er stefnt að því að gámurinn komi fyrir utan Búkollu þannig að þá vantar okkur mannskap í að tæma hann og byrja að raða upp. Það verður nóg að gera við það í þessari viku. Á fimmtudaginn, 18. des, ætlum við að vera með jólamat og hann verður kl. 18. Þetta verða nokkurskonar litlu jól hjá okkur og allir ætla að koma með pakka, fyrir ca. 500, og síðan fá allir pakka. Eftir þessa viku tökum við okkur svo jólafrí og það verður lokað 22. 23 og 24 des. Sé vonandi sem flesta í vikunni ! Kv. Siggi
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|